Litlu Stubbarnir mínir

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Guðbjörg Ólafsdóttir
  • Staður: Rvíkin
  • Hjúskaparstaða: Gift
  • Um mig: Hörkudugleg heimavinnadi húsmóðir eins og er!! Hef núna bara allann tímann í heiminum til að sinna syni mínum, hundunum... og manninum að sjálfsögðu! Ég er FORFALLIN hundasjúklingur og stolt af því. Á 2 Yorkshire terrier hunda, Cleo og Castro og á bara eftir að bæta við mig =) Núna stunda ég fimleika í Gerplu, GGG hópnum (gamalt og gott Gerplufólk hehe) og síðan er maður eins duglegur og maður getur í World Class

Bloggleysi dauðans....!!!

30. júlí 2008 klukkan 08:13
Jæja ætli að það sé ekki kominn tími á það að maður skelli enn einu bloggi hmmm...

Maður er nú búin að hafa það alveg frábært í sumar, enda ekki annað hægt þar sem að veðrið er búið að vera æði! Við erum búin að skella okkur í Húsafell og hafa það rosalega gott þar. Síðan er égt búin að vera að vinna, PönnZan búin að vera að passa Óli fyrir mig í sumar. Þau eru sko orðin svaka vinir!!! Svo erum við búin að vera svaka dugleg að skella okkur í sund... bara liggur við hverja einustu helgi!! Óla finnst svo gaman í sundi að maður bara getur ekki annað nema glatt litla stubbinn sinn sko!

Svo gáfu mamma og pabbi honum á námskeið hjá Lóló! Kom mér alveg á óvart hvað hann er ekkert búin að missa úr. Hélt kanski að hann væri eitthvað á eftir börnunum þar sem sum eru búin að vera frá því 3 mánaða með Óla. En NEI minn sko bara kunni þetta eins vel og hin. Enda við búin að vera dugleg að halda honum við og leyfa honum að fikra sig áfram í sundinu. Hann er sko mín hetja í sundina... veit sko ekki hvað er að vera hræddur!!!

Svo eru mamma, pabbi og Hrönn búin að vera dugleg að fara í útileigur Hlæjandi Við kíktum á þau í Húsafelli með voffana okkar. Þar stakk Castro af til að heilsa öllu svæðinuÖskrandi En það munaði sko engu að honum hafi bara verið stolið!!!!!!!!!!!!!! ertu ekki að grínast!!!!!!!!!! Kona sem að fann hann og fannst hann svo mikið yndi og glaður að henni langaði bara að eiga hann! Já ekkert mál það er ekki eins og hann eigi fjölskyldu fyrir sem þykir vænt um hann!! Hvað er málið með fólk??? En fyrir utan þetta þá höfðum við bara svaka gaman og Óli naut sín alveg í sælunni.

Síðan er það nýjasta. Það er nýr fjölskyldumeðlimur á leiðinni!!! yeah baby yeah ! Gekk bara svona svaka vel hjá okkur í þetta skipti að ég varð strax ólétt. Ég er sett 5 janúar og vonandi helst það bara...!!! Svo er 20 vikna sónarinn 20 ágúst! Get sko ekki beðið eftir að fá að kíkja í pakkann! Ég hef samt svona nett á tilfiningunni að þetta sé stelpa núna.. en ef að þetta er strákur er það sko ekkert verra!!! En það er alltaf gaman að pæla í þessu!

Svo er verslunarmannahelgin framundan.. við erum svo sem með ekkert planað... en það getur vel verið að maður kíki eitthvað... aldrei að vita. Mamma, pabbi og pönnZan ætla í Húsafell svo að það er spurning hvort að maður kíkji í þau eða eitthvað annað??? Annars er líka bara fínt að vera heima. Við gætum þá kanski girt garðinn sem er búið að vera á dagskrá svolítrið lengi...

Svo er það sko THE vika næstu viku! Þá fáum við nýja rúmið okkar sem er sko alveg langþráð! Það er 200*200! Svo það verður pláss fyrir 2 litla stubba að skríða uppí, bara æði! Svo er líka það að við erum að fá okkur nýjan bíl, Toyota Corolla Verso! Hann er bara æði og mikið mikið mikið stærri og ætti sko að rýma fjölskylduna okkar! Enda 7 manna bíl, en það er hægt að leggja niður sætin að aftan svo að það er svaka pláss í skottinu!

Jæja segjum þetta nóg í bíli, ég læt fylgja með mynd af nýja fjölskyldumeðlimnum!
kríli
Minna á síðuna hans Óla www.bazzason.barnaland.is og síðuna hjá nýja krílinu www.bazzabumba.barnaland.is

Skrifa athugasemd

Innskráningar kubbur

25 ára Ammæli

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...