Litlu Stubbarnir mínir

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Guðbjörg Ólafsdóttir
  • Staður: Rvíkin
  • Hjúskaparstaða: Gift
  • Um mig: Hörkudugleg heimavinnadi húsmóðir eins og er!! Hef núna bara allann tímann í heiminum til að sinna syni mínum, hundunum... og manninum að sjálfsögðu! Ég er FORFALLIN hundasjúklingur og stolt af því. Á 2 Yorkshire terrier hunda, Cleo og Castro og á bara eftir að bæta við mig =) Núna stunda ég fimleika í Gerplu, GGG hópnum (gamalt og gott Gerplufólk hehe) og síðan er maður eins duglegur og maður getur í World Class

Frábær helgi

07. apríl 2008 klukkan 12:04
Jæja þetta var sko bara geðveik helgi!!!

Á föstudeginum þá buðum við tengdó í mat. Orðið löngu tímabært sko! Svo að ég og Óli elduðum Lasagne og hvítlauksbrauð. Ekkert smá góð á því hérna sko! Síðan var horft á Bandið Hans Bubba um kvöldið og síðan..... sofnaði mín bara í sófanum (jájá ég er orðin gömul) Á laugardeginum dunduðum við Óli okkur á meðan Bassi var í vinnunni. Síðan kíkti Bassi á fimleikaæfingu uppí Gerplu. Við Óli, Steinunn og Hrönn kíktum svo a kappan. Óla fannst ekkert smá gaman á trampólíninu og vildi helst bara flytja lögheimilið sitt þangað. Líka algjört fjör að sjá svona marga komna saman eitthvað að sprikla hehe... Hrönn kíkti svo með okkur heim í mat, hún var nefnilega að passa fyrir okkur um kvöldið þessi elskaKoss Því að við kíktum á móralskan uppí Gerplu. Það var ekkert smá gaman, min bara edrú og læti sko! Ekkert smá DugleG! Bassi fékk sér smá bjór en var alveg búin eftir daginn og við fórum bara snemma heim. Mig langar að þakka fyrir mig þetta kvöld það var ekkert smá gaman!!! Síðan á sunnudeginum leyfði ég Bassi að sofa út og gerði íbúðina ekkert smá fína og kíkti síðan í apótek. Eftir að Óli vaknaði þá kíktum við í sund. Ekkert smá langt síðan að við fórum í sund... má bara skammast sín hérna sko! En Óla fannst svo gaman að ég hélt að hann myndi bara springa og var líka svo sannfærður um það að hann kunni nú að synda sjálfur heheheh! Við kiktum svo á tengdó í kaffi eftir sundið, þaðan var svo haldið heim að elda kvöldmat sem að kom bara helvíti vel út þó að ég segi sjálf fráGlottandi Síðan var farið í göngutúr og kíkt á Kambasels gengið, þaðan svo heim í kósýheit í faðmi fjölskyldunnar! Þetta var sko KÓSÝhelgi!!!

já og takk enn og aftur Hrönn mín fyrir pössuninaGlottandi

óli

Skrifa athugasemd

Innskráningar kubbur

25 ára Ammæli

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...